Clara, ungt Íslenskt fyrirtæki, heldur úti Vaktaranum, þjónustu sem fylgist með umræðu á netinu. Þeir prófuðu að fylgjast með orðunum hlaup, æfa og ræktin.
Sést á könnun þeirra að yfir jólin er lítið talað um að hreyfa sig og að strax eftir áramótin voru netverjar ansi háværir um hvað þeir ætluðu að vera duglegir. En þegar líða fór á janúar virtust allir sprungnir á því og búnir að gefast upp – eða halda kannski dugnaðinum aðeins meira útaf fyrir sig?
Bylgjan og Lýsi eru með leik í gangi þar sem óskað er eftir besta trixinu til að muna eftir að taka lýsi. Tekur þú lýsi með morgunmatnum, fyrsta kaffibollanum eða fyrsta innliti á Facebook á morgnana?
Við mælum auðvitað með að þú byrjir daginn á að kíkja á likaminn.is bloggið og um leið skellir í þig Lýsi. Og ekki gleyma morgunmatnum.
Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðug af A- og D- vítamínum og með viðbættu E-vítamíni. Þorskalýsi fæst óbragðbætt, með frískandi sítrónubragði og með ávaxtabragði.
Þorskalýsi styrkir vöxt tanna og beina, hefur góð áhrif á sjónina og byggir upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af ómega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka ítarlega áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, astma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.
Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.
RÚV hefur verið duglegt að sýna þætti um næringu og hollustu uppá síðkastið.
Í kvöld var sýndur þáttur um rannsókn, sem stóð yfir í tvö ár, á áhrifum aukinnar hreyfingar og hollustu barna. Þau voru látin bera rafeindabúnað sem mældi hreyfingu þeirra yfir tímabilið og bæði foreldra og kennara skráðu niður upplýsingar sem síðan unnið var úr.
Foreldrar og aðrir sem hafa áhuga á málefninu ættu að horfa á þáttinn.
Það er ekki að ástæðulausu sem það er tuggið ofaní okkur frá blautu barnsbeini að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins.
Fjölmargar rannsóknir styðja það að hollur og góður morgunmatur getur dregið líkurnar á allskyns sjúkdómum, eykur lífslíkur okkar og hefur heilt yfir jákvæð áhrif á bæði líkama og sál.
Vissir þú að..
Morgunmatur er máltíðin sem flestir sleppa
Á morgnana höfum við ekki fengið næringu í 8-12 tíma
Heilinn þarf á blóðsykri að halda til að búa til orku
Ívar Guðmundsson og Arnar Grant eru léttir í nýjum auglýsingum fyrir Hámark próteindrykkinn þeirra. Þeir snillingar hafa augljóslega húmor fyrir sjálfum sér – eitthvað sem allir ættu að hafa.