3 góðar ástæður fyrir að borða hægar

Margir kannast við að borði þeir nógu hratt, geti þeir borðað meira. Fyrir þá sem eru að reyna að leggja sér línurnar, létta sig eða að reyna að borða hollar, þá er það alls ekki eitthvað sem þeir ættu að venja sig á. Það er ekki bara að skyndibitinn sé óhollur heldur er hluti nafnsins vandamálið. Við eigum ekkert að borða í skyndi.
Hér er þrjár fínar ástæður fyrir því að við gefum okkur meiri tíma í að borða.
- Borðar minna – Við meltingu matar framleiðir líkaminn hormón sem berast til heilans og tilkynnir honum að þetta sé komið gott. Segir að einstaklingurinn sé búinn að fá nóg og nú sé komið að klára að melta matinn. Það segir sig síðan nokkuð sjálft að borði maður minna, auðveldar það manni að léttast.
- Nýtur matarins betur - Ef þú mokar bara í þig matnum nýturðu bragðsins ekki nærri eins mikið. Í staðin fyrir að háma í þig fullan disk, jafnvel tvo, geturðu þá mikið frekar leyft þér síðan einhverja óhollustu í desert. Að sjálfsögðu í hófi.
- Bætir meltinguna - Ef þú gefur þér betri tíma í að borða og nýtur hvers bita þá tyggurðu matinn betur og auðveldar þannig meltinguna.
Þetta snýst að sjálfsögðu um að okkur líði betur. Í dag virðist allt snúast um að gera allt hraðar. Koma við á skyndibitastað til að rífa með okkur eitthvað í hádeginu eða á leið heim úr vinnunni. Drífum okkur að borða til að ná næsta þætti af Desperate Housewives, nýjasta Lost þættinum eða til að stökkva í tölvuna til að sjá hvað hefur verið sagt á Facebook síðan síðast. Gefum okkur tíma frekar við matarborðið og slöppum af. Það fer mikið betur með okkur.
This entry is filed under Næring. And tagged with matur, stress. You can follow any responses to this entry through RSS 2.0. You can leave a response, or trackback from your own site.



-
No Comments
Post your comment