Helgi


Helgi er 28 ára gamall nemi við Aalborg Sporthøjskole og nemur hann til styrktarþjálfara. Þetta er árs nám sem gefur alþjóðleg réttindi til þjálfunar á styrk hjá öllum. Allt frá að gera æfingaskema fyrir eldri borgara til að styrktarþjálfa heil fótboltalið í heimsklassa.

Og gengur stærsti hluti bóklega námsins út á að læra um hvernig greining fer fram á hverri íþróttagrein fyrir sig til að geta metið um hvar íþróttamaðurinn þarf eða getur bætt sig og eins til að fyrirbyggja meiðsli.

Námið inniheldur:
• Lyftingatækni
• Líkamagreining (anatomi) vöðvar, beinagrind, taugakerfi o.s.frv.
• Kennslufræði
• Íþróttasálfræði
• Verkleg verkefni með fólki sem eru að sækjast eftir að standast ákveðin próf, t.d. inntökupróf lögregluskólans
• Hreyfingarfræði
• Kynningu á íþróttagreinum, farið á æfingar og prufað að setja sig inn í íþróttina
• Næringarfræði

Helgi kemur til með að koma með nokkur ráð fyrir fólk sem vill styrkja sig . Þó ber að hafa í huga að hver og einn er einstakur, þannig að öll ráð henta kannski ekki öllum(Veikindi, sjúkdómar, aldur og líkamsástand), enn mest verður þetta um hvernig skal standa rétt að lyftingum þ.e.a.s. tækni í t.d. bekkpressu, hnébeygju o.s.frv.. Hvaða æfingarform henta þeim sem eru byrjendur í tækjasal og fleira í þeim dúr.

Auk þess mun hann pósta áhugaverðu efni hvað varðar líkamsrækt og ber að hafa í huga að líkaminn og líkamsrækt eru í stöðugum rannsóknum og eins og áður segir þá er hver og einn einstakur og því verður sjálfsagt aldrei hægt að alhæfa í þessum efnum, enn þó eru margir hlutir sem geta hjálpað fólki gríðarlega þegar það kemur að því að rækta líkamann, bæði í mataræði og líkamsrækt.

Kristmundur Helgi Guðmundsson
Aalborg Sportøjskole – trænerakademiet – styrketræner
http://www.sportshojskolen.dk/

Færslur eftir höfund: