Yfirlit yfir 'Börn' flokkinn

Jamie Oliver á TED

Skrifa skoðun

TED er ráðstefna í Bandaríkjunum þar sem stjörnurnar úr heimi vísindanna og annað áhrifamikið fólk kemur saman og ræða stór og mikið málefni. Breski kokkurinn Jamie Oliver fékk þar tækifæri til að ávarpa þennan mikla hóp og færði Bandaríkjamönnum þar ansi sláandi staðreyndir um ástand barna og komandi kynslóðir þar í landi.

Ég held það sé nauðsynlegt fyrir okkur hér á Íslandi að fylgjast með ástandinu í kringum okkur og reyna að fyrirbyggja að svipað ástand komi upp hjá okkur.

3 einföld skref – minni líkur á offitu barna

Skrifa skoðun

Ný rannsókn leiðir í ljós að með þremur einföldum skrefum er hægt að minnka líkur á offitu barna til muna. En með því að:

  • Borða máltíðir með fjölskyldunni
  • Fá nægan svefn
  • Takmarka sjónvarpáhorf

Fjögurra ára krakkar á heimilum sem fylgdu þessum reglum voru 40% minna líkleg til að þjást af offitu en börn sem fylgdu þeim ekki.

Rannsóknir eru alltaf að leiða í ljós aðra þætti lífsstíls einstaklinga en að eingöngu hollt matarræði og hreyfing hafi áhrif á heilsu okkar.  Oftast eru þetta hlutir sem okkur þykja sjálfsagðir þegar við heyrum þá – og alveg jafn oft gerum við lítið sem ekkert í þeim. Eftir því sem við vitum af fleiri áhrifaþáttum eigum við kannski auðveldara með að koma auga á hvað má betur fara í okkar daglega lífi.

Hreyfing & hollusta – lykillinn

Skrifa skoðun

RÚV hefur verið duglegt að sýna þætti um næringu og hollustu uppá síðkastið.

Í kvöld var sýndur þáttur um rannsókn, sem stóð yfir í tvö ár, á áhrifum aukinnar hreyfingar og hollustu barna. Þau voru látin bera rafeindabúnað sem mældi hreyfingu þeirra yfir tímabilið og bæði foreldra og kennara skráðu niður upplýsingar sem síðan unnið var úr.

Foreldrar og aðrir sem hafa áhuga á málefninu ættu að horfa á þáttinn.