Yfirlit yfir 'Hreyfing' flokkinn

Setan er að drepa þig

Skrifa skoðun

Hér koma nokkrar áhugaverðar staðreyndir um hvað það er hættulegt að sitja lengi.

 

Sitting is Killing You
Via: Medical Billing And Coding

Fitubrennsla í kulda

Skrifa skoðun

Veturinn er engin afsökun fyrir að fara ekki út að hreyfa sig, enda er hreyfing í kulda mun áhrifameiri þegar kemur að fitubrennslu þar sem líkaminn notar meiri orku til að bæði hreyfa sig og halda á sér hita.

Þegar við finnum kaldan gust sendir heilinn skilaboð til kirtla líkamans sem dæla út umfram-magni adrenalíns. Adrenalínið ýtir við fitufrumum líkamans sem eykur magn fitunnar í blóðinu og auðveldar þannig vöðvum líkamans að brenna fituna.

Af hverju eru grannir ekki feitir?

Skrifa skoðun

Hér er fyrsti hluti áhugaverðrar heimildarmyndar frá BBC um rannsókn á grönnu fólki þar sem reynt er að finna út afhverju það helst grannt.

Jamie Oliver á TED

Skrifa skoðun

TED er ráðstefna í Bandaríkjunum þar sem stjörnurnar úr heimi vísindanna og annað áhrifamikið fólk kemur saman og ræða stór og mikið málefni. Breski kokkurinn Jamie Oliver fékk þar tækifæri til að ávarpa þennan mikla hóp og færði Bandaríkjamönnum þar ansi sláandi staðreyndir um ástand barna og komandi kynslóðir þar í landi.

Ég held það sé nauðsynlegt fyrir okkur hér á Íslandi að fylgjast með ástandinu í kringum okkur og reyna að fyrirbyggja að svipað ástand komi upp hjá okkur.

Að losna við hlaupasting

6 Skoðanir

Sennilega hafa allir fengið hlaupasting.

Flestir anda víst út á hlaupum þegar þeir stíga niður í hægri fótinn. Þegar maður byrjar útöndunina er lungað fullt af lofti og því þrýstist lifrin, sem er hægra megin í líkamanum, fastar niður við skellinn þegar stigið er í fótinn, og togar í þindina og veldur þannig verknum.

Eitt ráðið er því er að fylgjast með önduninni og anda frá sér þegar stigið er í vinstri fótinn.

Stattu upp!

Skrifa skoðun

Hversu lengi siturðu við tölvuna á dag?

Samkvæmt nýrri sænskri rannsókn eru auknar líkur á að þeir sem sitja í lengri tíma eiga á frekari hættu á að fá sjúkdóma og lifa skemur en þeir sem standa upp reglulega og hreyfa vöðvana. Ekki er um ferðir í ræktina og mikla hreyfingu að ræða heldur einfaldlega að standa upp og t.d. sækja sér kaffi.

Sem dæmi eykst hættan á kviðfituheilkennum (e. metabolic syndrome) kvenna, undanfari sykursýki og hjartasjúkdóma, um 26% fyrir hvern auka klukkutíma sem þær sitja fyrir framan sjónvarpið, samkvæmt einni rannsókninni.

Stattu því aðeins upp frá tölvunni og hreyfðu þig aðeins!

Ert þú að gefast upp á áramótaheitinu?

Skrifa skoðun

Clara, ungt Íslenskt fyrirtæki, heldur úti Vaktaranum, þjónustu sem fylgist með umræðu á netinu. Þeir prófuðu að fylgjast með orðunum hlaup, æfa og ræktin.

Sést á könnun þeirra að yfir jólin er lítið talað um að hreyfa sig og að strax eftir áramótin voru netverjar ansi háværir um hvað þeir ætluðu að vera duglegir. En þegar líða fór á janúar virtust allir sprungnir á því og búnir að gefast upp – eða halda kannski dugnaðinum aðeins meira útaf fyrir sig?

Kíkið á niðurstöður rannsóknardeildar Vaktarans.

Hreyfing & hollusta – lykillinn

Skrifa skoðun

RÚV hefur verið duglegt að sýna þætti um næringu og hollustu uppá síðkastið.

Í kvöld var sýndur þáttur um rannsókn, sem stóð yfir í tvö ár, á áhrifum aukinnar hreyfingar og hollustu barna. Þau voru látin bera rafeindabúnað sem mældi hreyfingu þeirra yfir tímabilið og bæði foreldra og kennara skráðu niður upplýsingar sem síðan unnið var úr.

Foreldrar og aðrir sem hafa áhuga á málefninu ættu að horfa á þáttinn.

Laus við 90kg

Skrifa skoðun

Víví Kristófersdóttir

Í síðasta þætti Spjallsins með Sölva á skjá einum er viðtal við Víví Kristófersdóttir sem losaði sig við 90kg eftir að hafa verið komin í 160kg.
Áhugavert viðtal fyrir þá sem eru að berjast við kílóin. Viðtalið hefst 20 mín. og 10 sec. inn í þáttinn.