Yfirlit yfir 'Lífsstíll' flokkinn

Setan er að drepa þig

Skrifa skoðun

Hér koma nokkrar áhugaverðar staðreyndir um hvað það er hættulegt að sitja lengi.

 

Sitting is Killing You
Via: Medical Billing And Coding

Af hverju eru grannir ekki feitir?

Skrifa skoðun

Hér er fyrsti hluti áhugaverðrar heimildarmyndar frá BBC um rannsókn á grönnu fólki þar sem reynt er að finna út afhverju það helst grannt.

Höfum opnað fyrir skráningar

Skrifa skoðun

Núna nýlega opnuðum við fyrir að notendur geti stofnað sér aðgang á likaminn.is.

Fyrsti hluti kerfisins er nú orðin virkur en það er mælingar hlutinn. Geta notendur haldið þar utan um þyngdir, fituprósentu, ummál og aðrar mælingar, búið sér til línurit til að fá betri yfirsýn yfir ástand líkamans og hvort hlutirnir eru að breytast til hins betra eða verra. Með aðstoð kerfisins er því auðveldara að halda sér við efnið þar sem myndræn framsetning á ástandi og markmiðum gefur kannski þessa auka pressu sem maður er að leita eftir.

Ef þú hættir að reykja strax

Skrifa skoðun

Ég veit ekki hvort það þarf að vera að taka það sérstaklega fram á vef sem þessum hvað reykingar séu óhollar.

Mynd af healthbolt.net

Hversu óhollt það er fyrir líkamann er kannski oft ekki nógu sýnilegt og skaðinn svo fjarlægur að reykingafólk áttar sig ekki á því. Sömuleiðis er kostur þess að hætta að reykja svo fjarlægur þar sem það að hætta eykur lífslíkurnar, sem er eitthvað sem lifandi manneskja spáir kannski lítið í.

Þessi listi yfir hvaða áhrif það að hætta að reykja hefur á líkamann strax eftir að þú drepur í minnir þig vonandi eitthvað á að þú ætlaðir sennilega að vera búin að drepa í þeirri síðustu. Lesa áfram ‘Ef þú hættir að reykja strax’