Yfirlit yfir 'Líkaminn.is' flokkinn

Höfum opnað fyrir skráningar

Skrifa skoðun

Núna nýlega opnuðum við fyrir að notendur geti stofnað sér aðgang á likaminn.is.

Fyrsti hluti kerfisins er nú orðin virkur en það er mælingar hlutinn. Geta notendur haldið þar utan um þyngdir, fituprósentu, ummál og aðrar mælingar, búið sér til línurit til að fá betri yfirsýn yfir ástand líkamans og hvort hlutirnir eru að breytast til hins betra eða verra. Með aðstoð kerfisins er því auðveldara að halda sér við efnið þar sem myndræn framsetning á ástandi og markmiðum gefur kannski þessa auka pressu sem maður er að leita eftir.

Bloggið opnað

Skrifa skoðun
Screen shot 2009-09-30 at 10.21.03 AM

likaminn.is

Þá erum við búin að opna bloggið og byrjuð að þróa kerfið sem verður vonandi opnað snemma á næsta ári. Á næstu mánuðum verða litlir hlutar þess opnaðir fyrir þá sem hafa áhuga á að vera í prufuhóp síðunnar og fá þeir senda aðganga að litlum eiginleikum síðunnar í einu, en hægt og rólega fá þeir einhverja heildarmynd yfir það hvernig kerfið virkar – og verða vonandi duglegir að koma með hugmyndir og athugasemdir sem við vinnum síðan úr.