Clara, ungt Íslenskt fyrirtæki, heldur úti Vaktaranum, þjónustu sem fylgist með umræðu á netinu. Þeir prófuðu að fylgjast með orðunum hlaup, æfa og ræktin.
Sést á könnun þeirra að yfir jólin er lítið talað um að hreyfa sig og að strax eftir áramótin voru netverjar ansi háværir um hvað þeir ætluðu að vera duglegir. En þegar líða fór á janúar virtust allir sprungnir á því og búnir að gefast upp – eða halda kannski dugnaðinum aðeins meira útaf fyrir sig?
Bylgjan og Lýsi eru með leik í gangi þar sem óskað er eftir besta trixinu til að muna eftir að taka lýsi. Tekur þú lýsi með morgunmatnum, fyrsta kaffibollanum eða fyrsta innliti á Facebook á morgnana?
Við mælum auðvitað með að þú byrjir daginn á að kíkja á likaminn.is bloggið og um leið skellir í þig Lýsi. Og ekki gleyma morgunmatnum.
Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðug af A- og D- vítamínum og með viðbættu E-vítamíni. Þorskalýsi fæst óbragðbætt, með frískandi sítrónubragði og með ávaxtabragði.
Þorskalýsi styrkir vöxt tanna og beina, hefur góð áhrif á sjónina og byggir upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af ómega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka ítarlega áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, astma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.
Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.
RÚV hefur verið duglegt að sýna þætti um næringu og hollustu uppá síðkastið.
Í kvöld var sýndur þáttur um rannsókn, sem stóð yfir í tvö ár, á áhrifum aukinnar hreyfingar og hollustu barna. Þau voru látin bera rafeindabúnað sem mældi hreyfingu þeirra yfir tímabilið og bæði foreldra og kennara skráðu niður upplýsingar sem síðan unnið var úr.
Foreldrar og aðrir sem hafa áhuga á málefninu ættu að horfa á þáttinn.
Það er ekki að ástæðulausu sem það er tuggið ofaní okkur frá blautu barnsbeini að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins.
Fjölmargar rannsóknir styðja það að hollur og góður morgunmatur getur dregið líkurnar á allskyns sjúkdómum, eykur lífslíkur okkar og hefur heilt yfir jákvæð áhrif á bæði líkama og sál.
Vissir þú að..
Morgunmatur er máltíðin sem flestir sleppa
Á morgnana höfum við ekki fengið næringu í 8-12 tíma
Heilinn þarf á blóðsykri að halda til að búa til orku
Ívar Guðmundsson og Arnar Grant eru léttir í nýjum auglýsingum fyrir Hámark próteindrykkinn þeirra. Þeir snillingar hafa augljóslega húmor fyrir sjálfum sér – eitthvað sem allir ættu að hafa.
Í síðasta þætti Spjallsins með Sölva á skjá einum er viðtal við Víví Kristófersdóttir sem losaði sig við 90kg eftir að hafa verið komin í 160kg. Áhugavert viðtal fyrir þá sem eru að berjast við kílóin. Viðtalið hefst 20 mín. og 10 sec. inn í þáttinn.
Kaloríupælingar eru alltaf skemmtilegar. Fæðan sem við borðum er mismunandi og því fróðlegt að sjá mun á magni kaloría í mismunandi fæðum sem við látum ofaní okkur. Meðal manneskja þarf að borða 2000-2500 kaloríur til að halda við eigin þyngd. Þetta er auðvitað breytilegt eftir hvernig lífi við lifum.
Wisegeek.com eru með góða samantekt nokkra tuga fæðu og setja hlutina í visst samhengi.
Þá erum við búin að opna bloggið og byrjuð að þróa kerfið sem verður vonandi opnað snemma á næsta ári. Á næstu mánuðum verða litlir hlutar þess opnaðir fyrir þá sem hafa áhuga á að vera í prufuhóp síðunnar og fá þeir senda aðganga að litlum eiginleikum síðunnar í einu, en hægt og rólega fá þeir einhverja heildarmynd yfir það hvernig kerfið virkar – og verða vonandi duglegir að koma með hugmyndir og athugasemdir sem við vinnum síðan úr.